Pura vida

Mape productions

11.10.2007 12:42:13 / viajeros

Stór fréttir!!

Hér koma góðar fréttir fyrir ykkur sem eruð búin að sakna okkar! Við erum á leiðinni aftur á klakann.

Þannig er mál með vexti að okkur líkar bara alls ekki við námið hérna. Okkur leiðist, erum ekki að læra neitt sem við höfum áhuga á og hópvinna er bara ekki fyrir okkur. Þetta nám er bara alltof artyfarty á slæman hátt. Þannig að við höfum ákveðið að skoða nýjar leiðir og ætlum í verkfræði í HÍ eftir áramót. Vonandi á okkur eftir að líka það betur. Við erum algörlega tilbúin í að takast á við alvöru nám þar sem maður lærir e-ð annað en það að vöfflur og bjór fara ekki vel saman.

Við sjáumst þá í næstu viku, við komum heim seinnt 18.október. Hlökkum til að hitta ykkur öll aftur!!



» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 11:09:50 / viajeros

Fréttir frá Danaveldi

Við erum núna að skrifa fyrstu ritgerðirnar okkar í háskóla. Sem á svo að skila í næstu viku. Sem betur fer megum við skrifa þær á ensku þar sem það væri frekar ómögulegt fyrir okkur að skrifa á dönsku ennþá. Ég er samt farin að skilja meira en ég gerði fyrst en ekki nógu mikið til að skilja allt sem fólkið segir. Venjulega er mjög einfalt að skilja kennarana en að skilja fólk á okkar aldri er mjög erfitt, þau tala svo hratt og hafa venjulega engan áhuga að tala hægar þannig að við getum skilið. Þannig að hóptímar eru ennþá frekar erfiðir.


Við fórum í bíó í fyrsta skiptið hérna í gær. Alveg undarlegt hversu mikið hreinni bíósalirnir eru hér miðað við heima. Ekkert popp á gólfinu eða gos sem klístrast við skónna. Við erum svona smátt og smátt að kynnast bænum.


Það er reyndar mjög þægilegt að vera námsmaður i Danmörku. Við borgum varla neitt í húsaleigu og maturinn er miklu ódýrari en heima. T.d. þá fór ég út í búð um daginn og keypti 12. stk. Kjúklingabringur á 1000kr íslenskar. Það er minna en 4 í pakka heima! Bjór er auðvitað mjög ódýrir sem veldur því að fólk hérna er alltaf með bjór á sér. Meira að segja er algengt að sjá nemendur með bjór í skólanum.


Skólakerfið er líka allt öðruvísi en við eigum að venjast heima. Allir áfangar ,nema stærðfræðin, eru próflausir og eiga bara að hjálpa okkur með að vinna verkefnin okkar. Þannig að jólaprófin eru bara eitt stærðfræðipróf og eitt skilaverkefni. Frekar þægilegt og ég get ekki sagt að ég sakni þess að vera í 10-12 jólaprófum eins og í MR en það er samt pínu tómlegt.

Bæ,bæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 15:51:56 / viajeros

Fyrsti skóladagurinn

Þetta var undarlegasti fyrsti skóladagur sem ég hef upplifað. Við mættum 8:30 í það sem átti að vera sameiginlegur morgunmatur nýstúdenta. Það sem við vissum ekki var að þetta var bara annað nafn fyrir að hittast og drekka alltof mikinn bjór. Margir voru með heila kassa og ég sá einn vera með heila kerru af bjór. Undarlegt.

Síðan löbbuðum við heil langa stund þangað til við komum í risastórann sal þar sem rektór flutti ræðu sem við skildum ekki mikið í. Allt í lagi með það. Eftir það áttu allir sem voru skráðir í Arkitektúr og Hönnun að hittast. Þar sem við erum svo rosalega mörg var enginn salur í skólanum sem gat rúmað okkur öll þannig að við hittumst á bar/samkomuhúsi sem er við hliðina á skólanum. Hmm..pínu undarlegt.

Eftir þetta var okkur skipt í smærri hópa, 5-7 manns, og fengum öll okkar eigið herbergi í skólanum. Í þessum hópum mun öll verkefnavinna fara fram. Allir hóparnir fengu líka 1-2 leiðbeinenda sem sýndu þeim skólann. Ég hef aldrei áður villst í skólabyggingu en eftir að leiðbeinendurnir voru búnir að sýna okkur skólan þá tók það mig ca. 20 min bara að finna leiðinna út.

Fyrsta skólaferðinn er síðan á miðvikudaginn. Þá eigum við að vakna kl:5 og fara til Kaupmannahafnar. Þar er planið að fara á nokkur söfn og skoða verk nokkra arkítekta og hönnuða sem á svo að veita okkur innblástur fyrir komandi verkefni.

Bæjó! 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 19:21:20 / viajeros

Costa Rica - Ísland - Danmörk

Við erum enn einu sinni búin að leggja land undir fót á vit ævintýranna.

Við höfum það bara gott í nýja landinu okkar og erum búin að koma okkur vel fyrir í litlu íbúðinni. 
Skólinn byrjar ekki fyrren á föstudaginn og þá er líka fyrsta háskólaballið, ætti að verða fjör þar sem nemendafjöldin í skólanu er 13.000. Ekkert smá. Við svindluðum samt pínu og 
byrjuðum í stærðfræðitímum fyrir viku á vegum háskólans. Til að rifja upp efnið fyrir fyrstu önnina, tala smá dönsku og hitta fólk.

Annars erum við bara að taka það rólega og bíða eftir því að skólinn byrji í alvöru. 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 22:40:59 / viajeros

Universal studios!

I gaer forum vid i skemmtigardin Adventure Islands sem er hluti af Universal Studios. Thad var aedi! Thegar vid lobbudum tharna inn var eins og ad koma i allt annan heim. Allt var svo otrulega vel gert og husin eins og i draumalandi. Russibanarnir voru lika algort aedi og vid urdum alveg frekar blaut i nokkrum theirra. I sidasta russibananum urdum vid alveg rennandi blaut og thar sem solin var ad fara nidur drifum vid okkur bara heim i thurr fot. Thannig ad vid komum heim a hotelid alveg rennandi blaut, daud threytt en otrulega anaegd med daginn.

I dag forum vid svo i Florida mall sem er alveg rosalega stor verslunarmidstod. Thar lobbudum vid bara um, keyptum fullt af doti og tindumst nokkru sinnum. Annars fer nu bara ad styttast i ad vid komum heim....bara tveir dagar eftir. Vid forum hedan a laugardaginn klukkan 18:00 en verdum ekki komin heim i kuldan fyrr en 06:00 a sunnudaginn. Samt er flugid bara sjo timar, paelidi adeins i thvi.


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 01:21:39 / viajeros

Florida

Vid skelltum okkur i Seaworld i dag. Planid var ad fara i gaer en.....thegar eg vogadi mer ut um morguninn var svo kalt, bara 20 gradur, ad eg hljop aftur inn og for i oll hlyjustu fotin min. Thvi midur voru thau ekki nogu hly fyrir mig thannig ad vid skelltum okkur i stadinn i verslunarferd thar sem eg keypti mer dunvesti og thykka peysu. Jamm, eg er farin ad kvida fyrir kuldanum heima. Held ad eg eigi ekki eftir ad geta farid ut ur Leifsstod.


Annars var Seaworld alveg aedi. Skodudum fullt af furdulegum dyrum og forum i russibana. Vid byrjudum a thvi ad vara i staersta russibanann, Kraken, sem var frekar rosalegur og for oft a hvolf. Thad var voda litid af folki i gardinum thannig ad vid gatum gert allt sem vid vildum og eiginlega engar radir i neitt.


Vid erum nuna farin ad skilja utaf hverju bandarikjamenn eru svona feitir. Astaedan er einfold: thad er allt fjoru sinnum staerra en heima og thad er varla haegt ad finna matsolustadi thar sem haegt ad fa eitthvad annad en skyndibita. Nema tha mjog dyra stadi sem vid erum ekkert mikid ad fara a. Vid erum samt alveg ordin had Starbucks. Alveg aedislegt kaffi og thad er svo notalegt ad geta loksins drukkid heitt kaffi an thess ad thurfa ad fara i kalda sturtu a eftir, hihi.

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 01:18:29 / viajeros

No problem, man

Pinu langt sidan vid bloggudum sidast......sorry thad vara erfitt ad komast a netid i Jamaica. Nuna erum vid hins vegar komin til Bandarikjanna. Komum fyrir sex klukkutimum og Anna er thegar buin ad kaupa ser Puma-sko og fleira, hihi. Okkur finnst rosa furdulegt ad vera komin aftur i land thar sem flestir eru hvitir, goturnar hreinar og enginn ad reyna ad selja okkur eiturlyf og satt ad segja er thad mjog thaegilegt ad vera komin aftur i vestraena menningu. Thad eina sem vid erum buin ad gera herna hingad til er ad labba um hverfid, fara i budir og skoda husin. Saum eitt hus a hvolfi, furdulegir bandarikjamenn. A morgun erum vid svo buin ad plana ad fara i Seaworld sem er herna rett hja. Annars var ferdin okkar til Jamaica baedi aedisleg og afslappandi en lika pinu furdulegt. Furdulegt utaf thvi ad ef madur vogar ser ut a gotu, meira ad segja a daginn, tha getur madur ekki labbad i fridi lengi. Goturnar eru fullar af dopsolum, gotusolumonnum og pirrandi leigubilsstjorum. Leigubilstjorarnir eru lika oftast verstu dopsalarnir. Thannig ad vid thurftum alltaf ad passa okkur thegar vid forum af hotelinu. Ad vera mikid uti a gotu seinnt a kvoldin var eiginlega bara haetturlegt thannig ad vid vorum ekkert mikid ad thvi. Hotelid hafdi lika eiginlega allt sem vid thurftum. Jamaica-buarnir fyrir utan dopsalana eru samt aedislegt folk og tala ensku med furdulegasta hreim sem vid hofum heyrt. Oft var mjog erfitt ad skilja hvad thau voru ad segja. Uppahalds ord jamaicabua eru: no problem, man, respect og hay. Sidasta daginn okkar i Jamaica vorum vid i hofudborginni Kingston, vorum hina dagana i Montego Bay. I Kingston forum vid a Bob Marley museum thar sem vid fengum goda fraedslu um lif hans, reggea og fleira. Vid vorum svo eina nott i Panama adur en vid flugum hingad i dag. Nuna erum vid med net a hotelinu thannig ad vid latum ykkur vita hvad vid erum ad gera herna og myndir fra Jamaica koma fljotlega.

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 17:07:18 / viajeros

Allt ad klárast

Sídasti dagurinn í Costa Rica og á morgun mjog snemma holdum vid ferdinni áfram til Jamaica. Í dag aetlum vid bara ad taka thví rólega, segja bae vid allt og alla, pakka og fara í sídast skiptid á alla uppáhaldsstadina okkar. Thad er mjog furdulegt ad vera ad fara hédan en vid hlokkum samt til ad halda ferdinni áfram, til Jamaica, Bandaríkjanna og svo loks heim á leid. Fyrir ykkur sem munid thad ekki thá komum vid svo heim klukkan 6:10 sunnudaginn 10. desember.

Í gaer fórum vid aftur í smá ferd. Vid ákvádum ad skella okkur ad skoda svokallada Fridarfossa. Á sama stad gátum vid skodad fullt af fidrildum, snákum, froskum og kólibrífugla. Thar sem thessi stadur er 2000m yfir sjávamáli thá var frekar kallt og rigning eiginlega allan tímann. Thad skipti okkur hins vegar engu máli thar sem vid vorum eiginlega bara fegin ad vera smá stund í kuldanum. Annars er búid ad vera óvenjulega skýjad og kalt hérna sídustu eina og hálfa viku. Vid lobbudum alveg heil mikid um í regnskóginum og fundum okkur svo arineld til ad sitja vid og drekka kaffi. Alveg mjog gód ferd. Myndir af thessari ferd og kaffiferdinni koma mjog fljótlega.


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 18:53:56 / viajeros

KAFFI!!

Váá! Kaffiferdin var algort aedi. Fengum alveg magnada fraedslu í kaffigerd og ollu sem thví tilheyrir.Vid erum algorir kaffisérfraedingar núna. Fórum fyrst ad skoda plonturnar, fengum sídan ad vita allt um hvernig ferlid til ad búa til kaffid fer fram og Hjalti var einn af thveimur sem fékk ad hjálpa til med ad smakka kaffid og laera hvernig madur veit hvort kaffid er gott eda ekki. Var algor snild og hann skemmti sér konunglega vid kaffismokkunina. Fékk svo flottan Caffee lovers hat eftir á. Eftir thad var haldin flott leiksýning um sogu kaffisins. Hljómar frekar leidinlega en vid hlóum allan tímann. Skemmtilegasti sogutími sem ég hef verid í. Their aettu ad vera svona í skólanum líka. Eftir mikla fraedslu og skemmtun fórum vid oll í kaffi og súkkuladi smokkun. Fengum ad eins mikid kaffi eins og vid vildum og smokkudum allar tegundirnar. Enda vorum vid í skemmtilegu koffein-flibbi eftir á. Svo var bodid upp á hladbord sem var algor snilld. Medal annars var haegt ad fá kjúkling med kaffisósu. Sem var bara mjog gott. Vid skodudum okkur svo adeins meira um og keyptum thrjá boli á Hjalta ádur en vid héldum glod en mjog threytt heim á leid.

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 19:54:39 / viajeros

Helgin

Nei, vid leyfdum loggunum ekkert ad skemma helgina fyrir okkur. Á laugardaginn fórum vid í smá verslunarferd og í bíó svona til ad slaka adeins á. Verdum ad nýta okkur ad thad kostar bara 200kr í bíó hérna! Vorum ad frétta ad bíóid heima er komid upp í 900kr. Thad er ekkert smá dýrt midad vid hér. Á sunnudaginn fundum vid okkur thessa rosa flottu sundlaug sem er frekar nálaegt húsinu okkar. Thar lágum vid í leti og steiktum okkur adeins ádur en vid fórum á uppáhalds pizzastadinn okkar. Í dag gerdumst vid svo algorir túristar og fórum í Sarchi sem er lítid thorp hérna nálaegt sem er mjog fraegt fyrir fallega minjagripi og húsgogn. Thad lobbudum vid um og skodudum í miklum hita.

Á morgun aetlum vid svo ad halda áfram ad vera algorir túristar og fara í kaffi-ferd. Forum ad skoda hvernig kaffi er búid til og eitthvad svoleidis. Erum voda spennt fyrir thví thar sem vid erum ordin algjorir kaffidýrkendur.

Já, og svo er bara vika eftir hjá okkur hérna sem er voda furdulegt. Vid erum ad reyna ad klára ad gera allt sem okkur langar ad gera hérna svona sídustu dagana. Á thridjudaginn í naestu viku verdur ferdinni heitid til Jamaica....


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 16:08:40 / viajeros

Loggu-vandamál

Helgin vard pínu odruvísi en vid bjuggumst vid. Í gaer loggdum vid af stad á strondina og allt í gódu lagi. Aetludum ad hitta vinkonur okkar thar og hafa thad gott um helgina en svo vard ekki. Eftir fimm klukkustundir í rútu vorum vid stoppud af loggunni sem vildi fá ad skoda vegabréfin okkar. Vid hofum eiginlega aldrei ferdast med vegabréfin okkar og aldrei thurft á theim ad halda thannig ad ég (Anna) var ekki med mitt. Mér var thá sagt ad ég fengi ekki ad halda áfram og thurfti ad fara úr rútunni. Hjalti kom med og vid tók mikid vesen. Loggan sagdi ad thad vaeri tvennt sem vid gaetum gert: 1) Tala vid innflytjandaeftirlitid á mánudaginn og í millitídinni thyrfti ég ad bída í fangelsi. 2) Fundid sjálf lausn á vandamálinu til thess ad hjálpa loggunni ad hjálpa okkur, eins og hann sjálfur ordadi thad.

Mér langadi bara alls ekki ad eyda helginni í fangelsinu en vid hofdum ekki hugmynd um hvernig vid sem thekkjum ekki login hérna áttum ad hjálpa loggunni ad hjálpa okkur. Thad versta var ad Hjalti átti ekki ad mega vera hjá mér. Hann fór hins vegar ekki neitt sem betur fer. Vid vorum ordin pínu hraedd og rádavillt á thessum tímapunkti.

Sem betur fer thá kom enskumaelandi costarica-búi okkur til hjálpar og útskýrdi ad ef ég vildi sleppa vid thad ad fara í fangelsi thá thurftum vid ad borga loggunni. Vid hofdum reyndar heyrt um svona tilfelli ádur. Loggurnar hérna gera helst ekkert án thessa ad fá borgad. Thannig ad ég laug ad honum ad vid aettum bara 40 dollara, vorum med miklu meira, til ad gefa honum. Thad dugdi og stuttu seinna vorum vid á leidinni aftur heim. Sem betur fer.

Fostudagurinn fór sem sagt í tólf tíma rútuferd og tveggja tíma bid á loggustodinni. Ekki nóg med thad heldur thurftum vid ad standa mest alla leidina heim thar sem rútan var trod full.

Thad er alla veganna ekki haegt ad segja ad vid hofum ekki lennt í aevintýrum hérna! Vid erum reynslunni ríkari og aetlum ekki ad láta thetta eydileggja neitt fyrir okkur thó ad vid seúm frekar skelkud og dofin í dag.


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 20:20:58 / viajeros

Monkeys on the loose

Í dag var heljarinnar kvedjupartý fyrir mig í vinnunni. Allir krakkarnir á leikskólanum teiknudu myndir handa mér og thad var stór kaka og laeti:D. Faekk líka skirtu frá kennurunum.Ég fékk líka leyfi til ad taka nokkrar myndir og thid getid skodad thaer hér til hlidar.:D
Svo erum vid á leidinni til Tamarindo um helgina, á ad vera ein flottasta strondin í landinu, thví midur sú dýrasta og vinsaelust hjá turistunum líka. Svo verdum vid bara ad skoda og ferdast naestu vikurnar.

P.S. Í dag fékk Anna sér fjogurra rétta máltíd og thar af voru thrír eftirréttir.

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 16:41:47 / viajeros

Tungumálaflaekja

Vid fórum í gaer ad skoda alveg magnada fossa sem eru í svona klukkutíma gongufjarlaegd frá okkur. Áttum pínu erfitt med ad finna thá fyrst en their voru alveg thess virdi ad leita adeins. Vid vorum eina fólkid á svaedinu og gátum thví labbad um eins og okkur sýndist og tókum alveg fullt af myndum sem vid setjum brádum inn. Hitin var samt alveg ad fara med okkur thegar vid vorum ad labba til baka. Thad er búid ad vera rosa heitt sídustu tvo daga sem thýdir bara ad vid erum búin ad borda rosa mikid ad ís til ad deyja ekki úr hita. Vid erum fastagestir í ísbúdunum hérna. hihi.

Annars er ég alveg haett ad geta talad íslensku, er alltaf ad rugla ordum og beygingum. Get heldur ekki talad ensku thar sem spaenskan er alltaf ad flaekjast inn í enskuna thannig ad thad verdur spanglish eins og vid kollum thad. Thad eina sem ég get talad er saenska sem er mjog undarlegt. Hérna kemur smá daemi um hvernig ég tala íslensku núna: Thad var einu sinni geithafur sem seldi oll fjárin sín og fór ad leita ad persónulega leigjandanum sínum. Ég aetladi hinsvega ad segja thetta: Thad var einu sinni fjárhirdir sem seldi aernar sínar og fór ad leita ad tilgang lífs síns. (úr alkemistanum) Já, algor tungumálaflaekja hérna.

Um helgina aetlum vid svo ad fara á strond sem á ad vera eins sú fallegast í ollu landinu. Forum snemma á fostudaginn thar sem thad tekur alveg fimm tíma ad keyra thangad.


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 22:14:05 / viajeros

Kalt í Costa Rica

Thad er bara komnir fullt af íslendingum hingad. Vorum ad hitta Gydu ádan sem var í mr í fyrra svo er onnur sem vid erum ekki búin ad hitta og en onnur sem kemur í naestu viku. Íslendingar gera innrás í Costa Rica!

Annars er allt eins og venjulega. Vid erum bara ad vinna alla virka daga og ferdast um helgar. Sídustu helgi fórum vid til Jacó til ad gerast letidýr og hafa thad gott enda gerdum vid ekki mikid annad. Núna ádan vorum vid kaupa fullt af kaffi til ad senda heim thar sem vid viljum fá ad smakka gott Costa Rica kaffi thegar vid komum heim. Kaffid sem vid drekkum hérna hjá fjolskyldunni er meira eins og litad vatn heldur en kaffi. Allt í lagi med thad samt, vid erum búin ad venjast thví. Svo erum vid loksins haett á módga fólk med thví ad segja thú vid thad. Ad segja thú vid fólk hérna er hreinasta ókurteisi. Madur verdur alltaf ad théra fólk. Foreldrar hérna théra meira ad segja bornin sín. Thannig ad í stadinn fyrir ad segja: sestu! segir madur: vilji thér setjast. Sídan segja flestir líka takk vid straetóbílsstjóran thegar their fara úr straetó. Rosa kurteist land.

Ég lennti samt í einu leidinlegu núna um daginn á barnaheimilinu. Thad kom ný stelpa á heimilind sem tók upp á thví fyrsta daginn ad fara í veskid mitt og stela naer ollum peningunum mínum. Ég fattadi thad ekki fyrr en eftir vinnudaginn thegar ég var á lestarsodinni á leidinni heim. Thá sá ég ad ég var ekki med neinn pening. Sem betur fer lánadi straetóbílsstjórinn mér fyrir ferdinni. Daginn eftir sagdi ég svo fóstrunum frá thessu og stelpan thurfti ad borga allt til baka. Núna gegn ég alltaf med peningana mína á mér í vinnunni.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 19:28:09 / viajeros

Breyting á planinu

Thad er ordin smá breyting á planinu hjá okkur. Vid aetludum upphaflega ad fara ad vinna í thjódgardi í desember og héldum ad vid vaerum búin ad borga fyrir allt ádur en vid fórum út, eda thad sogdu stúdentaferdir okkur. Svo kom í ljós ad vid erum ekki búinn ad borga fyrir sídasta mánudinn eda thad segja thau hérna úti. Thar sem vid viljum ekki vera ad borga 40.000kr fyrir ad vinna í mánud thá aetlum vid bara ad koma heim fyrr og ferdast adeins meira hérna. Vid vorum ad breyta flugmidunum í dag thannig ad vid forum til Jamaica 21. nóvember og verdum thar til 2. desember. Svo forum vid til Orlando og verdum thar til 9. desember. Sem sagt vid komum heim 9. desember!!! Já svolítid mikil breyting en okkur langar líka ad vera komin heim um jólin sérstaklega thar sem ég var ekki heima sídustu jól.

Um helgina aetlum vid svo ad gera adra tilraun til ad fara á strondina í Jaco thar sem thad var bara rigning sídustu helgi.


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan